Myndir
Nokkur af þeim verkefnum sem Smákranar hafa komið að frá 2003.
- Hreyfing
- Innnes
- Marmaraplata hjá Gísla Örn og Nínu Dögg
- Vélar og tæki
- H&M Smáralind
- Jamie’s Italian
- Ölgerðin
- Uppsetningar listaverka
- Ýmis glerísetningarverkefni
- Bygging Banana hf.
- Uppbygging Verne gagnaversins á Ásbrú
- Stækkun flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
- Bygging Háskólans í Reykjavík
- Hvalasafnið
- Perlan
- Harpa
- Búrfellsvirkjun
Innnes
Smákranar sáu um uppsetningu hillurekkakerfis fyrir SSI Schäfer – alþjóðlegt fyrirtæki í vörustjórnunarlausnum. Annars vegar var kerfi sett upp í frystiklefa Innnes, um 50 × 15 × 27 m, og hins vegar í þurrvörulager, 70 × 25 × 28 m.
Marmaraplata hjá Gísla Örn og Nínu Dögg
Frábært verkefni unnið fyrir leikarahjónin Gísla Örn Garðarsson og Nínu Dögg Filippusdóttur. 45 t Liebherr-kraninn okkar hífði 2,5 t JMG-keyrslukranann okkar yfir húsið, þar sem JMG-kraninn kom 1 t marmarasteini fyrir á sínum stað. Notuð var 1.500 kg glersogskálin okkar þar sem yfirborð steinsins var alveg slétt. Tókst frábærlega!
Ýmis glerísetningarverkefni
Smákranar eiga nokkrar glersogskálar sem ætlaðar eru fyrir ísetningar á stærri rúðum – eða rúðum sem ómögulegt er að taka á höndum. Starfsmenn fyrirtækisins hafa sett í eða skipt um yfir 5.000 rúður víðsvegar um suðvesturhornið, meðal annars í Kringlunni og Smáralind. Fyrirtækið á stærstu glersogskál landsins, sem getur tekið allt að 1.500 kg þungt gler.
Bygging Banana hf.
Í Korngörðum. 25 t P&H og 45 t Liebherr kranarnir okkar voru notaðir við uppsetningu 2.800 m² stálgrindarhúss fyrir Banana. Einnig voru smákranarnir notaðir í ýmsum öðrum verkum innandyra.
Uppbygging Verne gagnaversins á Ásbrú
Smákranar voru með JMG MC 25 kranann í uppsetningu yleininga, þar sem sérstök sogskál var notuð til að festa sig við einingarnar og kraninn keyrði með þær á sinn stað.
Stækkun flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
Smákranar hafa frá 2004 tekið þátt í flestum stigum stækkunar byggingarinnar. Glerísetningar víðsvegar, uppsetning á hvítu brúnni inni í aðalbyggingunni og færslur og uppsetningar á stál- og rúllustigum er meðal þess sem fyrirtækið hefur komið að.
Bygging Háskólans í Reykjavík
Unic-köngulærnar voru hífðar upp á þak þar sem þær slökuðu gleri niður í lokaða garða byggingarinnar.
Harpa
Á árunum 2009–2011 voru litlu kranarnir okkar mikið notaðir víðsvegar í nýbyggingu Hörpu og er talið að um 250 tonn af alls kyns hlutum hafi verið híft, meðal annars loftræstibúnaður, járnbitar, gluggakubbar, krossviðarplötur og gler.





















































































