Tæki
Bílkranar, köngulóarkranar, JMG kranar og annar búnaður til hífinga á erfiðum stöðum.
Bílkranar
Liebherr LTC 1045-3.1
Þessi krani kom til okkar í október 2017 og hefur reynst afar vel. Hann er aðeins nettari en hinn bílkraninn og þegar bóman er alveg niðri er hann ekki nema rétt rúmir 3 m á hæð, svo hægt er að keyra hann inn um flestar vöruhurðir. Hann er einnig með þráðlausri fjarstýringu svo stjórnandinn getur verið alveg upp við byrðina sem er hífð.
Liebherr LTM 1045-3.1
Þennan krana fengum við árið 2015 og hefur hann verið afar farsæll í notkun. Hann er þriggja öxla og vegur 36 tonn (12 t á öxul). Hann er með 34 m bómu og 16 m jibbframlengingu.
Báðir bílkranarnir eru með „heavy duty“ jibbi, 1,4 m grindarframlengingu sem sett er á bómuhausinn. Hægt er að vera með vírspil eða fastan krók á jibbinu, sem minnkar þá krókhæðina.
Köngulóarkranar
Unic URW-295
Fyrsti smákraninn sem við fluttum inn til landsins og sá sem við höfum notað hvað lengst. Hann er ekki nema 60 cm á breidd í keyrslustöðu, svo hann fer í gegnum allar venjulegar einfaldar hurðir. Þegar unnið er innandyra er hann tengdur við þriggja fasa rafmagn.
Afskaplega þægilegur krani með 9 m krókhæð – og með glussajibbframlengingu nær hann 12 m lyftihæð.
Unic URW-706
Stóri bróðir 295-kranans – í allt öðrum stærðarflokki og miklu öflugri. Hann hífir 6 t í 3 m radíus og getur verið með allt að 22 m bómu. Hann er 1,67 m á breidd og 2,18 m á hæð, svo hann ætti að komast í gegnum tvöfalda hurð.
Kraninn hefur reynst ákaflega vel – helst í stöðvarhúsi nýju Búrfellsvirkjunar, þar sem við unnum fyrir ÍAV Marti. Þá höfum við unnið inni í loðnubræðslunni á Akranesi, inni í Perlunni við að hífa rusl af efstu hæð og þegar kísilverksmiðja USi var í startholunum. Þar var kraninn í þrjá mánuði á efstu hæð byggingarinnar.
JMG kranar
JMG MC 25S – 2,5 t
Annar tveggja ítalskra krana frá JMG sem keyra um með hlassið (pick and carry). Þessi er 94 cm á breidd og afar hentugur í minni verkefni innandyra, glerísetningar og þegar toga eða ýta þarf þungum tækjum með flutningaskautunum okkar. Honum er stjórnað með þráðlausri fjarstýringu.
JMG MC60 – 6 t
Stærri bróðir 2,5 t kranans – og líkt og 706-kraninn er hann í allt öðrum stærðar- og notkunarflokki en litli bróðirinn. Honum má einnig stýra með þráðlausri fjarstýringu, en hann er líka með keyrsluhúsi.
Báðir JMG-kranarnir eru með sérstökum jibbframlengingum og vírspilum og eru afskaplega þægilegir við glerjun, þar sem glussakerfið er mjög mjúkt.
Annar búnaður
Kappel sogskálar
Við eigum þrjár mismunandi gerðir glersogskála, samtals 9 stk. – þar af 4 glænýjar. Þær eru frá 300 kg lyftigetu upp í stærstu glersogskál landsins til ísetninga, sem tekur 1.500 kg.
Á henni er fjarstýring sem gerir kleift að snúa glerinu 360° og halla því frá 90° í 0°. Hafi skálin ekki verið sett nákvæmlega á miðju er lítið mál að gera rúðuna alveg lárétta með því að snúa skálinni til hægri eða vinstri. Hinum skálunum má einnig snúa og halla handvirkt.
Aluex herðatré og 2,5 t hífibiti
Smákranar ehf. eru með umboð fyrir Aluex herðatré, sem mynda eins konar X þegar þau eru notuð til hífingar. Þannig veldur togátakið ekki þrýstingi á byrðina sem gæti valdið skemmdum.
Einnig eigum við sérstakan hífibita sem við notum til ýmissa hífinga, einkum til að hífa hluti inn undir skyggni og þess háttar hindranir. Á honum er færanlegt andvægi sem stjórnað er með þráðlausri fjarstýringu, svo byrðin og bitinn eru alltaf í jafnvægi. Hann lyftir allt að 2,5 t 1,5 m inn undir skyggni og 700 kg 3 m inn undir skyggni.

































